دورية أكاديمية

Tæknileg færni og öndun við notkun innöndunartækja hjá einstaklingum með langvinna lungnateppu og astma ; Capacity to use inhaler devices in individuals with chronic obstructive pulmanary diseas and asthma: technical and breathing capability

التفاصيل البيبلوغرافية
العنوان: Tæknileg færni og öndun við notkun innöndunartækja hjá einstaklingum með langvinna lungnateppu og astma ; Capacity to use inhaler devices in individuals with chronic obstructive pulmanary diseas and asthma: technical and breathing capability
المؤلفون: Anna María Leifsdóttir, Helga Jónsdóttir, Þorbjörg Sóley Ingadóttir
المساهمون: Landspítali háskólasjúkrahús, heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
بيانات النشر: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
سنة النشر: 2016
المجموعة: Hirsla - Landspítali University Hospital research archive
مصطلحات موضوعية: Langvinn lungnateppa, Asma, Pulmonary Disease, Chronic Obstructive, Asthma, Nebulizers and Vaporizers, Dry Powder Inhalers, Metered Dose Inhalers
الوصف: Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn ; Tilgangur: Innöndunarlyf, gefin með innöndunartækjum, eru kjörmeðferð við langvinnri lungnateppu (LLT) og astma. Ófullnægjandi notkun innöndunartækja, sem innihalda þessi lyf, er hins vegar algengt vandamál. Tilgangur rannsóknarinnar er að lýsa færni einstaklinga með langvinna lungnateppu og astma við notkun innöndunartækja, einkum sjúklinga með langvinna lungnateppu. Aðferð: Í þessari þverskurðarrannsókn var skjólstæðingum með langvinna lungnateppu og astma á 8 heilsugæslu-stöðvum á höfuðborgarsvæðinu og 6 stofum lungnalækna í Læknasetrinu boðin þátttaka. Nýtt mælitæki, Notkun innöndunartækja, var notað í rannsókninni. Mælitækið var útbúið og forprófað af höfundum, fjögurra gilda Likert-kvarði mælir tæknilega færni (5 atriði) og öndun (5 atriði), annars vegar fyrir dufttæki og hins vegar fyrir innúðatæki. Niðurstöður: Þátttakendur (N=125) voru 59 karlmenn og 66 konur. Meðalaldur var 59,5 ár. Alls 100 einstaklingar voru með LLT og 25 með astma. Meirihluti þátttakenda (n=91) notaði innöndunarlyf reglulega, 12 notuðu eftir þörfum og 21 notaði ekki innöndunarlyf. Tvenns konar innöndunartæki voru prófuð, 97 notuðu dufttæki og 31 notaði innúðatæki. Tæknileg færni var fullnægjandi hjá 63% til 100% þátttakenda. Mest var tæknilega færnin í að hrista innúðatæki. Lökust var færnin í að halda innúðatæki eða dufttæki uppréttu við notkun. Öndun var fullnægjandi við notkun hjá 39% til 100% þátttakenda. Allir þátttakendur sátu í æskilegri stöðu við notkun beggja tækjanna. Meira en helmingur þátttakenda tæmdi lungun ekki nægilega vel áður en þeir önduðu lyfi að sér og um helmingur hélt ekki niðri í sér andanum á fullnægjandi hátt eftir lyfjagjöf. Ekki reyndust tengsl á milli bakgrunnsbreyta og tæknilegrar færni og öndunar nema á milli alvarleika sjúkdóms og getu til að anda lyfi djúpt og rólega að sér úr innúðatæki. Ályktanir: Tæknilega færni við notkun innöndunartækja má bæta umtalsvert. Erfiðara er að álykta um möguleika til að bæta öndun ...
نوع الوثيقة: article in journal/newspaper
اللغة: Icelandic
تدمد: 1022-2278
العلاقة: http://hjukrun.is/timarit-hjukrunarfraedinga/ritryndar-greinarTest; Tímarit hjúkrunarfræðinga 2016, 92(2): 10-18; http://hdl.handle.net/2336/614807Test; Tímarit hjúkrunarfræðinga
الإتاحة: http://hdl.handle.net/2336/614807Test
حقوق: Open Access
رقم الانضمام: edsbas.795A90C2
قاعدة البيانات: BASE